
Það verður aldeilis blásið í lúðra á sunnudagskvöldið kemur í Dalvíkurkirkju kl. 20.00 -
Í tilefni Mottu-mars verður messan í þeim anda. Karlakór Dalvíkur mun syngja undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar og sr. Oddur Bjarni þjónar -

Sérstakur gestur er svo snillingurinn, íþróttalýsandinn og skólastjórinn Sigurbjörn Árni Arngrímsson, en hann er ræðumaður messunnar.
Að messu lokinni verður hægt að eiga samfélag og kaffisopa í safnaðarheimilinu. Þar mun
Hörður Óskarsson vera með sína dásamlegu skartgripi til sölu, til styrktar Krabbameinsfélaginu (KAON) -
Fjölmennum í Dalvíkurkirkju, sunnudagskvöldið 16. mars kl. 20.00 :)
Comments